17.07.09 - 17:04
Magnús Már Einarsson
Barry Ferguson til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur keypt Barry Ferguson fyrirliða Rangers á eina milljón punda.
Lengi hefur þess verið vænst að hann færi frá Rangers í kjölfar þess að hann var settur í agabann fyrir framkomuna í landsleiknum gegn Íslendingum í apríl þar sem hann sýndi löngutöng þar sem hann sat á bekknum en áður hafði hann setið að sumbli fyrir leikinn.
Ferguson var áður fyrirliði Rangers en hann hefur núna skrifað undir tveggja ára samning við nýliða Birmingham.
Ferguson hefur áður reynt fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni en hann lék með Blackburn í eitt og hálft ár á sínum tíma.

Heimild: Sky