Fotbolti.net
17.07.09 - 16:00
Magnús Már Einarsson

Sam Malsom í Þrótt (Staðfest)

Sam Malsom í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Þróttur hefur fengið enska framherjann Sam Malsom til liðs við sig frá B36 í Færeyjum en þetta kemur fram á heimasiðu síðarnefnda félagsins.
Malsom er 21 árs gamall en hann gekk í raðir B36 fyrir einu ári síðan. Á heimasíðu félagsins er honum þakkað fyrir sitt framlag og þá kemur fram að B36 hafi ekki viljað standa í vegi fyrir honum að fara til Íslands og því hafi báðir aðilar sæst á að slíta samningum.

Áður var Malsom á láni hjá Torquay United, Plymouth Argyle og Tiverton Town á Englandi.

Malsom gæti leikið með Þrótti gegn Breiðablik í Pepsi-deildinni nætstkomandi mánudag ef hann fær leikheimild í tæka tíð.

Sjá einnig:
Viðtal á ensku og upplýsingar um feril Sam Malsom

Heimild: Heimasíða B36

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.