17.07.09 - 17:29
Magnús Már Einarsson
Guðmundur Pétursson í Breiðablik á láni (Staðfest)
Gerir nýjan samning við KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur fengið framherjann Guðmund Pétursson á láni frá KR. Guðmundur hefur einnig skrifað undir nýjan tveggja og hálfs árs samning við KR en hann mun leika með Blikum út sumarið.
Víkingur R. og Þróttur höfðu bæði sýnt Guðmundi áhuga en Blikar náðu að klófesta leikmanninn.
Guðmundur gekk í raðir KR sumarið 2006 en hann kom þá til félagsins á miðju sumri frá ÍR.
Í sumar hefur Guðmundur leikið níu leiki með KR í Pepsi-deildinni en hann hefur í öllum leikjunum komið inn á sem varamaður.
Þá hefur þessi 22 ára gamli leikmaður leikið tvo leiki í VISA-bikarnum og skoraði eitt mark, gegn Víði Garði í síðustu viku.
Guðmundur hefur fengið félagaskipti í Breiðablik og hann getur því leikið með liðinu gegn Þrótti í Pepsi-deildinni næstkomandi mánudagskvöld.