Fotbolti.net
17.07.09 - 17:28
Hafliði Breiðfjörð

Helgi Már Helgason í Grindavík (Staðfest)

Helgi Már í leik með Grindavík.

Helgi Már í leik með Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Markvörðurinn Helgi Már Helgason er genginn í raðir Grindavíkur að nýju frá Reyni Sandgerði og er kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Stjörnunni á sunnudag.
Óskar Pétursson verður þó áfram aðalmarkvörður liðsins en Helgi mun verma varamannabekkinn og veita Óskari samkeppni um byrjunarliðssætið.

,,Okkur vantar backup fyrir Óskar, við höfum bara verið með 2. og 3. flokks stráka og þeir eru báðir frá núna um helgina svo okkur vantaði varamarkvörð,\" sagði Luka Kostic þjálfari Grindavíkur við Fótbolta.net rétt í þessu. ,,Helgi vill líka fá að vera með okkur enda er hann Grindvíkingur,\" bætti hann við.

Helgi Már Helgason er 26 ára gamall markvörður. Hann á 16 leiki að baki með Grindavík í efstu deild en hefur einnig leikið með liðinu í 1. deild auk þess að leika með Reyni Sandgerði í 2. og 3. deild. Hann lék síðast með Grindavík sumarið 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.