17.07.09 - 18:02
Magnús Már Einarsson
KS/Leiftur fær Guðjón Gunnarsson á láni frá Blikum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

KS/Leiftur í 2.deildinni hefur fengið miðjumanninn Guðjón Gunnarsson á láni frá Breiðablik.
Guðjón þekkir til hjá KS/Leiftri því að hann lék þrettán leiki með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra þegar hann var einnig á láni.
Í sumar hefur Guðjón leikið þrjá leiki með Breiðablik í Pepsi-deildinni.
Þá var hann í byrjunarliði Blika þegar að liðið lagði Hött 3-1 í VISA-bikarnum á dögunum.
Guðjón er kominn með leikheimild með KS/Leiftri og hann getur því leikið með liðinu þegar það tekur á móti Njarðvík í 12.umferðinni í annarri deildinni á morgun.