Fotbolti.net
17.07.09 - 19:40
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Maxwell til Barcelona (Staðfest)

Maxwell til Barcelona (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur gengið frá kaupunum á Maxwell vinstri bakverði Inter.
Maxwell kemur til félagsins á 4,5 milljónir evra en kaupverðið gæti mögulega hækkað í fimm milljónir síðar meir.

Maxwell er búinn að standast undir læknisskoðun hjá Barcelona og í kvöld skrifaði hann undir fjögurra ára samning við félagið.

Þessi 27 ára gamli Brasilíumaður er fyrsti leikmaðurinn sem Barcelona fær í sumar en honum er ætlað að fylla skarð Silvinho sem er farinn frá Börsungum eftir að samningur hans rann út.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.