17.07.11 - 23:35
Elvar Geir Magnússon
Hólmbert Aron Friðjónsson í Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar hafa bætt við sig leikmanni en Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir félagsins frá botnliði 1. deildarinnar, HK.
Þessi efnilegi leikmaður er fæddur 1993 og hefur vakið talsverða athygli fyrir frammistöðu sína á vængnum hjá HK-ingum.
Hólmbert er stór og sterkur og býr yfir mikilli tækni. Spennandi verður að sjá hvernig hann finnur sig í búningi Fram í Pepsi-deildinni.
Hann skoraði 5 mörk í 20 leikjum fyrir HK-inga í fyrra og hefur spilað tíu leiki fyrir liðið á þessu sumri.
Fram er neðst í 1. deildinni með aðeins þrjú stig og er því að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.