Fotbolti.net
17.08.10 - 12:35
Hörður Snævar Jónsson

Craig Bellamy til Cardiff á láni (Staðfest)

Craig Bellamy til Cardiff á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest að Craig Bellamy er genginn í raðir Carfiff á láni út þessa leiktíð.
Hann mun verða kynntur til leiks hjá Cardiff klukkan 14:00 í Wales.

Bellamy er fyrirliði Wales og mun styrkaj lið Cardiff mikið í baráttunni í Championship deildinni.

Hann var ekki í plönunum hjá Roberto Mancini þrátt fyrir að hafa verið einn besti maður liðsins á síðustu leiktíð.

Stjörnukaup félagsins í sumar hafa þítt að Mancini taldi sig ekki hafa nein not fyrir hann.

,,Manchester City getur staðfest að Craig Bellamy hefur samþykkt að ganga í raðir Cardiff á láni út þessa leiktí,\" sagði í yfirlýsingu frá City.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.