17.08.11 - 23:04
Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin til Hjörring (Staðfest) - Doninger líklega áfram

Gary Martin er farinn á lán til Danmerkur út árið.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gary Martin framherji ÍA er farinn til Hjörring í Danmörku á láni fram að áramótum eins og Fótbolti.net greindi frá fyrr í kvöld. Þetta staðfesti Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri félagsins við Fótbolta.net rétt í þessu.
Martin fer á láni til danska félagsins til áramóta og í kjölfarið hefur Hjörring tíma til að skoða þann möguleika að halda honum ef þeir vilja kaupa hann.
,,Aðalmarkmið sumarsins er komið og við höfum breiðan hóp til að ná næsta markmiði sem er að vinna deildina,\" sagði Þórður við Fótbolta.net.
,,Gary verður sárt saknað. Hann spilaði stórt hlutverk hjá okkur í sumar og á ár eftir af samningi við okkur. Með þessu spilar hann fótbolta fram í lok nóvember í stað þess að fara í þriggja mánaða frí og lengir þannig þann glugga sem han hefur til að sýna sig og sanna.\"
Þórður sagði einnig að Mark Doninger sem hefur átt mjög gott sumar á miðjunni hjá ÍA verði væntanlega áfram hjá félaginu á næstu leiktíð en samningur hans rennur út í lok tímabilsins.
,,Við erum komnir langt með að framlengja við hann. Við vorum ánægðir með hans tímabil og því sem hann hefur bætt við í leik liðsins. Við erum komnir vel á leið með að tryggja okkur hann áfram.