Fotbolti.net
17.08.23 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hver er Wataru Endo? - Óvænt kaup hjá Liverpool

Wataru Endo.

Wataru Endo.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er að ganga frá kaupum á japanska miðjumanninum Wataru Endo en hann kemur til félagsins frá Stuttgart í Þýskalandi.
Endo, sem er þrítugur, er fyrirliði Stuttgart, en hann bað þýska félagið um að leyfa sér að fara til að upplifa drauminn að spila með stóru félagi.

Liverpool er þegar búið að ná samkomulagi við Endo um kaup og kjör og mun hann nú ferðast til Bretlandseyja til að ganga frá skiptunum. Kaupverðið er um 18 milljónir evra.

Liverpool ákvað að snúa sér að Endo eftir að Moises Caicedo og Romeo Lavia höfnuðu félaginu. Þeir sömdu báðir við Chelsea frekar.

Hver er þetta?
En hver er þessi Endo? Það hafa líklega fáir hér á Íslandi heyrt um kauða en þetta er afar óvæntur kostur fyrir Liverpool.

Enzo hefur bara spilað þrjú tímabil í einum af stóru deildum Evrópu þrátt fyrir að vera orðinn þrítugur. Hann á flottan feril að baki í Japan þar sem hann spilaði með Shonan Bellmare og Urawa Red Diamonds. Hann vann Meistaradeildina í Asíu með síðarnefnda liðinu árið 2017.

Hann fór yfir í evrópskan fótbolta árið 2018 er hann samdi við Sint-Truiden í Belgíu. Hann fór svo á láni til Stuttgart og hjálpaði liðinu að komast upp í þýsku úrvalsdeildina. Endo fékk í kjölfarið lengri samning í Þýskalandi.

Á þremur tímabilum í þýsku úrvalsdeildinni hefur Endo skorað tólf mörk og lagt upp ellefu, þar á meðal skoraði hann í umspilinu er Stuttgart hélt sér uppi á síðustu leiktíð.

Endo, sem er 1,78 á hæð, er djúpur miðjumaður sem getur einnig leyst það að spila miðvörð.

Á fyrsta tímabili sínu í Þýskalandi þá var Endo sem fór í flest varnareinvígi eða 312 talsins. Hann var líka mikið í því að vinna boltann og gerði það vel. Hann er góður í pressunni sem hentar vel fyrir Liverpool. Hann er leiðtogi og var fljótlega gerður að fyrirliða Stuttgart og gegnir hann enn þeirri stöðu í dag.

„Sem leikmaður og manneskja, þá er hann ótrúlega verðmætur," sagði Sven Mislintat, fyrrum yfirmaður fótboltamála hjá Stuttgart. Mislintat starfar í dag hjá Ajax í Hollandi. „Hann er akkerið á miðjunni og afar mikilvægur í okkar kerfi. Hvort sem hann er djúpur á miðju eða miðvörður, þá er gott að hann sé til staðar fyrir okkur."

Pellegrino Matarazzo, fyrrum stjóri Stuttgart sem gerði Endo að fyrirliða liðsins, lýsti miðjumanninum sem stríðsmanni.

Að Endo sé að koma til Liverpool segir til um að hversu mikil áhrif Jörg Schmadtke hefur hjá félaginu. Schmadtke tók við sem yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool í sumar en hann þekkir þýska boltann afar vel eftir að hafa starfað í Þýskalandi allan sinn feril, síðast hjá Wolfsburg. Hvort að Japaninn sé nægilega góður fyrir Liverpool er eitthvað sem á eftir að koma í ljós.

Endo í leik með Stuttgart.

Endo í leik með Stuttgart.

Canon

Mynd: Getty Images

Hefur verið fyrirliði Stuttgart síðustu árin.

Hefur verið fyrirliði Stuttgart síðustu árin.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.