Fotbolti.net
17.09.09 - 11:03
Magnús Már Einarsson

Guillermo Franco til West Ham (Staðfest)

Guillermo Franco til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur samið við mexíkóska framherjann Guillermo Franco.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið án félag síðan að hann yfirgaf Villareal síðastliðið sumar.

Franco hefur verið orðaður við nokkur spænsk félög og þá var hann nálægt því að ganga til liðs við Suður-Ameríkumeistarana í Estudiantes áður en West Ham kom til skjalana.

,,Ég er mjög ánægður með að semja við West Ham. Það var draumur minn að fá að spila í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði Franco.

Dean Ashton er frá vegna meiðsla og því mun Franco berjast um stöðu við Carlton Cole, Frank Nouble og Alessandro Diamanti.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.