Fotbolti.net
17.09.09 - 13:13
Magnús Már Einarsson

Caleb Folan til Middlesbrough á láni frá Hull (Staðfest)

Caleb Folan til Middlesbrough á láni frá Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur fengið framherjann Caleb Folan á láni frá Hull City.
Lánssamningurinn gildir til þriggja mánaða en að honum loknum á Middlesbrough möguleika á að kaupa leikmanninn.

Folan mun fara beint inn í leikmannahóp Middlesbrough fyrir toppslaginn gegn WBA í Championship deildinni um helgina.

Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður þá mega félög í neðri deildunum í Englandi fá menn á láni og Gareth Southgate stjóri Middlesbrough hefur nýtt sér þetta með því að krækja í Folan.

Þá fékk Boro einnig Sean St Ledger á láni frá Preston North End fyrr í þessari viku.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.