Fotbolti.net
17.09.10 - 14:03
Magnús Már Einarsson

Frank Nouble til Swansea á láni (Staðfest)

Frank Nouble til Swansea á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea City hefur fengið framherjann Frank Nouble á láni frá West Ham en lánssamningurinn er til þriggja mánaða.

Nobule þekkir vel til Brendan Rodgers stjóra Swansea þar sem þeir unnu saman hjá Chelsea á sínum tíma.
,,Ég er hæstánægður með að fá Frank,\" sagði Rodgers.

,,Ég veit að hann er í miklum metum hjá Avram Grant stjóra West Ham en hann þarf að fá að spila leiki.\"

Ekki er ólíklegt að Nouble komi beint inn í liðið hjá Swansea fyrir leikinn gegn Scunthorpe á morgun.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.