HK tilkynnti í dag að fyrirliði kvennaliðsins, Brookelynn Entz, yrði ekki áfram hjá félaginu.
Entz var hjá HK í tvö ár eftir að hafa fyrst komið til Íslands árið 2022 og spilað með Val.
Hún er fædd árið 1998 og reyndist HK heldur betur vel þau tímabil sem hún spilaði með liðinu. Fyrra tímabilið skoraði hún tíu mörk í átján leikjum og í sumar skoraði hún þrettán mörk í átján leikjum.

Bæði tímabilin var HK í Lengjudeildinni og í bæði skiptin var liðið nokkuð nálægt því að fara upp um deild; þremur stigum frá 2. sætinu í fyrra og fjórum stigum frá því í ár.
Fyrir þetta tímabil tók Entz við fyrirliðabandinu hjá HK. „Brookelynn hefur spilað frábærlega fyrir HK ásamt því að koma að þjálfun í yngri flokkum félagsins," segir í tilkynningu HK.
Athugasemdir