Fotbolti.net
17.10.07 - 16:16
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Michael Bridges til Sydney FC (Staðfest)

Michael Bridges til Sydney FC (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Michael Bridges, fyrrum leikmaður Newcastle og Leeds, gekk í dag til liðs við ástralska félagið Sydney FC frá Hull City.
Þessi 29 ára gamli sóknarmaður hitti nýju liðsfélaga sína á æfingu í morgun og er búist við því að hann verði með í leik liðsins gegn Central Coast í næstu viku.

Hann getur hins vegar ekki verið með liðinu í næsta heimaleik gegn Adelaide þar sem hann þarf að fá atvinnuleyfi.

Bridges, sem verður líklega í sex mánuði í Sydney, hefur einnig spilað fyrir Bristol City, Carlisle United auk þess sem hann spilaði með Leeds eftir að hafa slegið fyrst í gegn með Sunderland.

Heimild: AAP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.