Fotbolti.net
17.10.19 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Robertson: McTominay er búinn að vera frábær

Andy Robertson

Andy Robertson

Canon

Mynd: Getty Images

Any Robertson, leikmaður Liverpool á Englandi, er spenntur fyrir leiknum gegn Manchester United um helgina en hann talaði þá afar vel um Scott McTominay, liðsfélaga hans í skoska landsliðinu.
Robertson og McTominay eru góðir félagar utan vallar en þeir mætast á sunnudaginn.

McTominay leikur með Manchester United en þeir ræddu leikinn aðeins í landsleikjatörninni með Skotum.

„Það hafa margir góðir skoskir leikmenn og þjálfarar gert mikið fyrir þessi félög. Við erum augljóslega með þessa tengingu og það er mjög jákvætt fyrir mig og Scotty að vera fulltrúar Skotlands hjá þessum liðum," sagði Robertson.

„Ég og Scotty höfum aðeins verið að kítast meðan við vorum að spila með landsliðinu en samt ekkert of mikið."

„Mér fannst hann frábær gegn San Marínó og hann hefur verið mjög góður með United þrátt fyrir erfiðleika þeirra. Hann ber sig vel og það er mikil tilhlökkun að mæta honum á sunnudag en auðvitað vona ég að við vinnum leikinn,"
sagði hann í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.