17.11.06 - 13:54
Guðmundur Dagur Ólafsson
Gabor Kiraly til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ungverski markvörðurinn Gabor Kiraly er genginn til liðs við enska Úrvalsdeildarfélagið West Ham United á tveggja vikna 'neyðar' lánssamningi frá enska fyrstu deildarliðinu Crystal Palace.
Palace vildu losna við Kiraly eftir að hann missti sæti sitt í liðinu og einhver ósætti eru á milli hans og Peter Taylor stjóra liðsins. Í síðasta mánuði missti hann sæti sitt í byrjunarliðinu og fyrr í vikunni fékk Palace Iain Turner að láni, þannig að Ungverjinn kemst ekki einu sinni í leikmannahópinn.
West Ham buðu því hinum 30 ára Kiraly, sem lék með Palace í Úrvalsdeildinni fyrir nokkrum árum, að koma á láni og mun hann berjast við þá Robert Green og Roy Carroll um sæti í liðinu.
Samningur Kiraly, sem lék með Herthu Berlin áður en hann gekk til liðs við Palace, við West Ham mun renna út þann 3.desember næstkomandi en Lundúnarliðið gæti framlengt saminginn ef hann stendur sig vel.

Heimild: Sky Sports