17.11.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Arnar Már Guðjónsson í KA (Staðfest)

Mynd: Heimasíða KA

Mynd: Heimasíða KA
Miðjumaðurinn Arnar Már Guðjónsson hefur gert tveggja ára samning við KA að því er fram kemur á heimasíðu félagsins.
Arnar Már er uppalinn hjá ÍA og hefur leikið með liðinu alla tíð. Samningur hans við félagið rennur út um áramótin og hefur Arnar ákveðið að ganga til liðs við KA.
Þessi tvítugi leikmaður skoraði eitt mark í fjórum leikjum með ÍA í sumar en hann á leiki að baki með bæði U17 og U19 ára landsliði Íslendinga.
Dean Martin tók við þjálfun KA á dögunum en hann þekkir vel til Arnars þar sem þeir léku saman með Skagamönnum í sumar.

Heimild: Heimasíða KA