17.11.07 - 14:13
Magnús Már Einarsson
Viðar Guðjónsson í Fylki (Staðfest)

Viðar í leik með Víkingi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Viðar í leik með Víkingi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Miðjumaðurinn Viðar Guðjónsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Fylki og gera tveggja ára samning við félagið en þetta staðfesti Leifur Garðarsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
,,Viðar er duglegur og kraftmikill leikmaður þannig að við erum ánægðir með að fá hann," sagði Leifur við Fótbolta.net í dag.
Viðar er annar leikmaðurinn sem Fylkismenn fá til sín síðan tímabilinu lauk en Allan Dyring samdi við félagið fyrr í haust. ,,Við erum ekki að taka allt sem býðst heldur vanda okkur og menn þurfa klárlega að styrkja hópinn ef við látum til skarar skríða," sagði Leifur við Fótbolta.net.
Viðar sem er 27 ára gamall gekk til liðs við Víking í sumar eftir að hafa áður leikið allan sinn feril með Fram.
Hann rifti samningi sínum við Víking á dögunum og hefur nú gengið til liðs við Fylki. Viðar hefur alls leikið 92 leiki í efstu deild og skoraði í þeim níu mörk.
Þá hefur miðjumaðurinn Kristján Ómar Björnsson úr Haukum æft með Fylki að undanförnu.
Hann lék með Fylki þegar að liðið sigraði Aftureldingu 3-0 í æfingaleik fyrr í dag en eins og við greindum frá á dögunum stefnir Kristján Ómar á að leika í Landsbankadeildinni næsta sumar.