17.11.09 - 14:16
Magnús Már Einarsson
Dave Kitson til Middlesbrough á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur fengið Dave Kitson, framherja Stoke, á láni í tvo mánuði.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Stoke síðan að hann kom til liðsins frá Reading á 5,5 milljónir punda sumarið 2008.
Kitson hefur einungis skorað tvö mörk fyrir Stoke í ensku úrvalsdeildinni en hann mun nú fara til Middlesbrough.
Gordon Strachan, nýráðinn stjóri Boro, hefur verið ósáttur við framherja liðsins en auk þess að fá Kitson á láni þá fékk hann einnig Marcus Bent á láni á dögunum.
,,Ég er ánægður með komu Dave því að hann mun auka breiddina og gefa okkur fleiri möguleika,\" sagði Strachan.

Heimild: Sporting Life