Svanberg Óskarsson hefur verið ráðinn til Tindastóls, hann er tekinn við sem þjálfari kvennaliðs félagsins. Hann tekur við liðinu af Donna sem var áðinn þjálfari U19 ára landsliðs kvenna í síðasta mánuði.
Svanberg er fæddur árið 1997 og er á KSÍ skráður í KR. Hann kemur frá KÍ Klaksvík í Færeyjum þar sem hann þjálfaði unglingalið karla og var í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Þar áður var hann hjá Fortuna Hjörring í Danmörku.
Tindastóll féll úr Bestu deildinni í haust og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Tilkynning Tindastóls
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks kvenna. Við kynnum með ánægju Svanberg Óskarsson sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks kvenna.
Svanberg hefur síðastliðin ár þjálfað utan landssteina. Hann hefur þjálfað hjá Fortuna Hjörring í Danmörku og núna síðast starfaði hann hjá KÍ Klaksvík í Færeyjum.
Svanberg segir: „Það er mikill heiður að fá að koma norður og taka við Tindastóli. Hér er öflugt og samheldið samfélag, og ég hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum við að efla það góða starf og þann kúltúr sem þegar er til staðar."
„Ég er virkilega spenntur fyrir því að vinna með fólkinu í kringum félagið og hjálpa liðinu að taka næstu skref.”
Eftir krefjandi tímabil í deild þeirra Bestu, þar sem liðið féll niður um deild, er ljóst að framundan er mikilvægt uppbyggingarstarf.
Markmið Tindastóls er skýrt - Það er að snúa aftur í deild þeirra Bestu og byggja upp sterkt og samkeppnishæft lið til framtíðar.
Við bjóðum Svanberg hjartanlega velkominn til Tindastóls og hlökkum til samstarfsins.
Áfram Tindastóll!
Athugasemdir