Fotbolti.net
18.01.07 - 11:44
Andri Fannar Stefánsson

Calum Davenport til West Ham (Staðfest)

Calum Davenport til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hafa fengið varnarmanninn Calum Davenport frá Tottenham en kaupverðið er óuppgefið. Alan Curbishley stjóri Hamranna lítur nú til þess að styrkja vörn liðsins fyrir fallbaráttuna.
Þessi 24 ára leikmaður sem kom frá Coventry í ágúst 2004 hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu hjá Martin Jol.

Davenport hefur samþykkt þriggja og hálfs árs samning við West Ham en hann fór þangað á láni við komu sína til Tottenham, þá voru Hamrarnir í fyrstu deild. Hann dvaldi þar í tvo mánuði.

Hann fór síðan á láni til Southampton og Norwich til að öðlast reynslu á síðasta tímabili áður en hann kom til baka til Tottenham og hóf núverandi tímabil sem hluti af liðinu.

Davenport hefur hinsvegar ekki vegnað nógu vel eftir endurkomu Ledley King í vörnina og hafa King og Michael Dawson hafið efnilega samvinnu í hjarta varnarinnar á White Hart Lane.

Þrátt fyrir það að hann hafi nýlega komið í staðinn fyrir King sem er meiddur hafa Tottenham ákveðið að leyfa honum að fara til Eggerts Magnússonar og félaga í West Ham.

Tottenham eru sem stendur í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en West Ham eru í því átjánda og því stefnir allt í harða fallbaráttu hjá Alan Curbishley og lærisveinum hans.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.