Fotbolti.net
18.01.08 - 10:53
Hafliði Breiðfjörð

Antonio Valencia til Wigan (Staðfest)

Valencia í leik með Wigan.

Valencia í leik með Wigan.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce er á fullu að styrkja leikmannahóp Wigan og nú í morgun staðfesti hann kaup á Antonio Valencia leikmanni Villarreal en kaupverðið var ekki gefið upp. Valencia er landsliðsmaður Ekvador og kemur gegn því að hann fái atvinnuleyfi en hann hefur verið á láni hjá Wigan.
Hann er 21 árs gamall og gerði þriggja og hálfs árs samning við Wigan. Hann er þriðji leikmaðurinn sem Bruce fær í janúar, kemur á eftir Maynor Figueroa, Erik Edman og Wilson Palacios.

,,Hann hefur hraða og tækni, hann er sterkur eins og uxi og mjög duglegur," sagði Bruce í dag en Valencia hefur leikið alla leiki með liðinu síðan nóvember þegar Bruce tók við liðinu.

,,Nú er framtíð hans frágengin, ég vil að hann einbeiti sér alveg að fótboltanum og haldi áfram að bæta sig því ég tel að hann hafi möguleikana á að verða toppleikmaður."

Valencia á að baki 35 leiki fyrir Wigan síðan í byrjun síðustu leiktíðar og hefur skorað eitt mark.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.