Fotbolti.net
18.01.08 - 17:37
Hafliði Breiðfjörð

Brede Hangeland til Fulham (Staðfest)

Hangeland í baráttu við  Alan Smith þáverandi leikmann Man Utd á síðustu leiktíð.

Hangeland í baráttu við Alan Smith þáverandi leikmann Man Utd á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham gengu í dag frá kaupum á norska varnarmanninum Brede Hangeland sem kemur til félagsins frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku.
Hangeland gerir þriggja og hálfs árs samning við Fulham en kaupverðið var ekki gefið upp.

Hann er 26 ára gamall og er fæddur í Texas. Hann var fyrirliði Viking í Noregi er Roy Hodgson stjóri Fulham var þar.

,,Ég er hæstánægður með að geta boðið Brede velkominn til Fulham, og ég tel að hann muni sanna sig sem mjög sterk kaup fyrir okkur," sagði Hogdson við vefsíðu Fulham í dag.

,,Ég þekki auðvitað mjög vel til hæfileika hans og er viss um að hann muni hjálpa okkur í vörninni, og spila mikilvægan þátt í þeim leikjum sem eru eftir af þessari leiktíð og komandi leiktíðum."

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.