Fotbolti.net
18.01.08 - 17:46
Hafliði Breiðfjörð

West Ham lánar Davenport til Watford (Staðfest)

Calum Davenport  í leik með Tottenham.

Calum Davenport í leik með Tottenham.

Canon

Mynd: Getty Images

Watford hafa gengið frá samningum við West Ham United um að fá Calum Davenport leikmann liðsins á láni til eins mánaðar með möguleika á að kaupa hann síðar.
Davenport sem er 25 ára gamall miðvörður hóf feril sinn hjá Coventry en fór þaðan til Tottenham árið 2004.

Hann var á láni hjá West Ham þegar hann ákvað að ganga til liðs við þá á síðasta ári.

Hann hefur nýlega komist í form á ný eftir aðgerð við kviðsliti sem varð til þess að hann var frá meiri hluta síðustu leiktíðar.

,,Stjórinn virðist verulega jákvæður og mig klæjar að komast aftur út því það er liðinn svo langur tími núna," sagði hann.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.