Fotbolti.net
18.01.08 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð

Portsmouth fær Aubey og lánar Traore frá sér (Staðfest)

Djimi Traore var lánaður frá Portsmouth til Rennes í Frakklandi.

Djimi Traore var lánaður frá Portsmouth til Rennes í Frakklandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski varnarmaðurinn Lucien Aubey gekk í dag í raðir Portsmouth til loka tímabilsins en á sama tíma var Djimi Traore lánaður til Rennes í Frakklandi.
Aubey sem er fæddur í Kongó kemur frá Lens í Frakklandi á láni en þar hafði hann leikið 12 leiki á tímabilinu í frönsku deildinni.

Hann er sókndjarfur bakvörður sem verður þriðji leikmaðurinn sem Harry Redknapp fær til félagsins í janúar en í samningi hans er klásúla sem gerir Portsmouth kleyft að kaupa hann ef hann nær að sanna sig.

,,Hann er stór, sterkur og fljótur, ég hef nokkrum sinnum horft á hann," sagði Redknapp á vefsíðu félagsins. ,,Hann getur spilað vinstri bakvörð, á vinstri kanti og í miðverði. Mér fannst áhugavert að fá hann á láni."

Í kjölfarið fer bakvörðurinn Traore frá félaginu á láni ári eftir að hann var keyptur frá Charlton en hann hefur aðeins fengið að leika fimm leiki með liðinu á tímabilinu og vildi leita annað.

Hann var því lánaður til Rennes út tímabilið en franska liðið á möguleika á að kaupa hann í sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.