18.02.09 - 16:41
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Hólm Aðalsteinsson í Keflavík (Staðfest)

Bjarni Hólm í búningi Keflavíkur í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Hólm í búningi Keflavíkur í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn sterki Bjarni Hólm Aðalsteinsson er genginn í raðir Keflavíkur frá ÍBV en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í K-húsinu í Keflavík nú rétt í þessu þar sem hann gerði tveggja ára samning við félagið.
Bjarni Hólm er fæddur árið 1984 og lék upp alla yngri flokkana með Huginn á Seyðisfirði. Hann gekk í raðir Fram árið 2002 og lék með liðinu 30 leiki í deild og bikar 2002 og 2003 en var leigður til baka til Hugins fyrir tímabilið 2004 leiktíð og lék stórt hlutverk í að koma liðinu upp úr 3. deildinni.
Hann gekk svo í raðir ÍBV í desember árið 2004 og lék með liðinu undanfarnar fjórar leiktíðir, samtals 69 deilarleiki og sex bikarleiki og skoraði fyrir félagið 10 mörk.
Bjarni lék á sínum tíma tvo leiki fyrir U21 árs landsliðið, sjö fyrir U-17 og fimm leiki fyrir U-19 og skoraði í þeim 1 mark.
Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Keflavíkur í vetur, áður hafði Haukur Ingi Guðnason komið frá Fylki.
Bjarni sem er miðvörður mun verða kærkomin viðbót í vörnina hjá Keflavík því liðið hefur misst þrjá miðverði frá síðustu leiktíð. Guðmundur Viðar Meta fór í Val, Hallgrímur Jónasson til GAIS í Svíþjóð og Kenneth Gustavsson til Finnlands.
Þá hefur Keflavík einnig misst Guðmund Steinarsson ti Vaduz í Liechtenstein og Danina Hans Mathiesen og Patrik Redo.