18.02.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Aliaksandr Hleb til Krylia Sovetov (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hvít-rússneski landsliðsmaðurinn Aliaksandr Hleb hefur gengið til liðs við rússneska úrvalsdeildarfélagið Krylia Sovetov, en þetta var staðfest á heimasíðu félagsins í dag.
Hleb, sem er 30 ára gamall fékk sig lausan frá Barcelona á dögunum en hann lék samtals 36 leiki með félaginu á fjórum árum sínum hjá liðinu. Hann lék einungis eitt tímabil með liðinu í raun, en hann fór á lán til Birmingham, Stuttgart og Wolfsburg á tíma sínum þar.
Hann lék þá áður hjá Arsenal við góðan orðstír áður en hann ákvað að fara til Barcelona sumarið 2008. Hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við rússneska liðið Krylia Sovetov en hann gerir samning við félagið út tímabilið.
Hann á að baki 53 leiki og sjö mörk með landsliði Hvíta-Rússlands, en hann er fyrirliði liðsins.

Heimild: Goal.com