18.02.12 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
FH lánar Andra Gíslason í Þrótt (Staðfest)

Andri í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri í leik með FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur hefur fengið til sín sóknarmanninn Andra Gíslason úr FH lánaðan tímabundið fyrir komandi tímabil.
Andri, sem er 20 ára gamall hefur verið lykilmaður upp alla yngri flokka FH-inga en hann vann Íslandsmótið með öðrum flokki félagsins síðasta sumar og hefur verið viðloðinn meistaraflokk liðsins einnig.
Hann skoraði 17 mörk í 13 leikjum á Íslandsmótinu með 2. flokk félagsins í fyrra og endaði markahæstur í deildinni.
Hann hefur nú verið lánaður í Laugardalinn þar sem hann kemur til með að leika með Þrótturum í fyrstu deildinni í sumar, en samningur hans við FH gildir til ársins 2013.
Hann er kominn með leikheimild og getur því spilað gegn BÍ/Bolungarvík í Lengjubikarnum á morgun.