Fotbolti.net
18.02.12 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Atli Guðjónsson til ÍR (Staðfest)

Atli Guðjónsson í leik með ÍR

Atli Guðjónsson í leik með ÍR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR í fyrstu deildinni hefur fengið til sín varnarmanninn Atla Guðjónsson frá BÍ/Bolungarvík, en hefur æft með liðinu undanfarnar vikur.
Atli, sem er 23 ára gamall varnarmaður er kominn á kunnugar slóðir en hann lék með ÍR-ingum árið 2009 og 2010. Hann gekk svo til liðs við BÍ/Bolungarvík þar sem hann lék 21 leik í fyrstu deildinni í fyrra.

Hann er nú kominn aftur til ÍR-inga þar sem hann kemur til með að vera mikill styrkur fyrir komandi tímabil, en hann er sonur Guðjóns Þórðarsonar, sem þjálfar Grindavík núna og þjálfaði hann hjá Bolungarvík.

Hann er kominn með leikheimild og getur því leikið með liðinu gegn ÍBV í Lengjubikarnum á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.