Fotbolti.net
18.02.12 - 11:24
Elvar Geir Magnússon

Warnock ráðinn stjóri Leeds (Staðfest)

Warnock hress eftir að hann kom QPR upp.

Warnock hress eftir að hann kom QPR upp.

Canon

Mynd: Getty Images

Neil Warnock hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Leeds í Championship-deildinni út næsta tímabil. Þessi 63 ára maður var rekinn frá QPR í síðasta mánuði en hann tekur við Leeds af Simon Grayson

Warnock fær það verkefni að koma Leeds í umspil um úrvalsdeildarsæti en liðið er sex stigum frá umspilssæti.
Warnock hefur mikla reynslu af því að koma liðum upp en hann kom QPR upp í úrvalsdeildina í fyrra.

Stuðningsmenn Leeds munu líklega taka misjafnlega í þessa ráðningu en samband þeirra og Warnock hefur ekki alltaf verið eins og best verður á kosið, sérstaklega meðan hann var knattspyrnustjóri Sheffield United.

Warnock segir að það hafi ekki verið erfið ákvörðun að taka við Leeds eftir fund með stjórnarformanninum umdeilda Ken Bates.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.