18.02.12 - 19:39
Elvar Geir Magnússon
Grétar Hjartarson í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. deildarlið Reynis í Sandgerði hefur samið við sóknarmanninn Grétar Ólaf Hjartarson. Grétar er uppalinn hjá félaginu.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá hinum 33 ára gamla Grétari síðasta sumar en hann skoraði eitt mark í sjö leikjum í Pepsi-deildinni með Keflavík.
Þessi reynslumikli leikmaður er búsettur í Sandgerði en Reynismenn hyggjast styrkja lið sitt enn frekar fyrir sumarið.
Grétar hefur skorað fjölmörg mörk í efstu deild en hann hefur spilað með Grindavík og KR og einnig hefur hann spilað í Noregi.