Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. febrúar 2021 10:30
Victor Pálsson
Morrison með tvo möguleika - Áhugi frá Spáni og Englandi
Mynd: Getty Images
Ravel Morrison, fyrrum undrabarn Manchester United, er í viðræðum við tvö lið en hann er samningslaus þessa stundina.

Morrison var talinn gríðarlegt efni á sínum tíma en ferillinn hefur ekki staðist væntingar og var hann leystur undan samningi í Hollandi á síðasta ári.

Lið í næst efstu deild Englands hefur áhuga á Morrison sem og lið í efstu deild Spánar.

„Ég átti fund með liði í Championship-deildinni í morgun og ég held að það hafi gengið vel," sagði Morrison.

„Ég væri til í að halda mig hér vegna fjölskyldunnar. Ég á tvo litla bræður og móður mína. Ég hef ferðast allt mitt líf."

„Það er líka lið á Spáni í La Liga, það gæti gerst."
Athugasemdir
banner
banner