Svanberg Óskarsson hefur sagt upp starfi sínu sem aðalþjálfari Tindastóls eftir aðeins þrjá mánuði. Hann var ráðinn um miðjan nóvember.
Svanberg er 28 ára gamall og starfaði sem aðstoðarþjálfari kvennaliðs KÍ í Færeyjum áður en hann var ráðinn á Sauðárkrók.
Það hafa verið gríðarlega miklar breytingar á leikmannahópi Tindastóls í vetur þar sem liðið missti meðal annars þrjá öfluga leikmenn til Þórs/KA og hefur byrjað undirbúningstímabilið hörmulega.
Liðin steinlá til að mynda gegn Þór/KA í Kjarnafæðismótinu og tapaði 16-0 gegn ÍBV í Lengjubikarnum. Tindastóll dró sig í kjölfarið úr leik í Lengjubikarnum.
„Við óskum honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekur að sér í framtíðinni og þökkum honum fyrir hans störf," segir í stuttri tilkynningu frá Tindastóli.
„Hafin er leit að nýjum þjálfara."
Stólarnir féllu úr Bestu deildinni í fyrra og geta búist við þungum róðri á komandi tímabili í Lengjudeildinni.
Athugasemdir




