Ýmir Hjálmsson mun leika fyrir Völsung á komandi tímabili eftir að hafa verið í Njarðvík í fyrra, þar sem hann kom við sögu í þremur leikjum í Lengjudeildinni.
Hann lék einnig þrjá leiki fyrir Njarðvík í Lengjubikarnum og skoraði þar eitt mark, gegn Völsungi á Húsavík.
Ýmir er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað í vörn og á miðju og er í leikmannahópi Völsungs sem spilar við Þór í Boganum innan skamms.
Hann er uppalinn hjá ÍA en hefur einnig spilað fyrir Selfoss í yngri flokkum.
Völsungur leikur áfram í Lengjudeildinni eftir að hafa nælt sér í 25 stig úr 22 umferðum í fyrra.
Athugasemdir


