18.03.08 - 06:00
Eyþór Ernir Oddsson
Nani til West Ham (Staðfest)

Gianluca Nani ásamt þjálfara West Ham, Alan Curbishley.

Mynd: Getty Images

Enska liðið West Ham staðfesti í gær að félagið hafi samið við Ítalann Gianluca Nani um að taka við sem tækniformaður hjá félaginu.
Nani mun hefja störf í júní en hann mun láta af núverandi starfi sínu hjá ítalska b-deildarliðinu Brescia.
,,Ég er spenntur yfir þessari reynslu. Þetta er allt öðruvísi og ég er stoltur af því að vinna á Englandi," sagði Nani.
,,Ég er stoltur og það er mér heiður að vera hér í West Ham. Ég veit þetta er lið með fullt af sögu. Ég hitti Alan og Scott Duxbury (Framkvæmdastjóra West Ham) fyrir nokkrum mánuðum. Við töluðum um metnað klúbbsins og við höfum sama sjónarhorn á því."
,,Ég er viss um að þetta sé lið með ótrúlega hæfileika. Við verðum að vinna í að ná þessum hæfileikum úr liðinu og á völlinn," bætti Nani við.