18.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jón Auðunn og Helgi Már í Árborg (Staðfest)

Helgi Már og Jón Auðunn ásamt Baldvin Árnasyni, varaformanni Árborgar.

Mynd: Guðmundur Karl

Knattspyrnufélag Árborgar hefur fengið til liðs við sig þá Jón Auðunn Sigurbergsson og Helga Má Erlingsson.
Jón Auðunn er miðvallarleikmaður og kemur frá ÍR. Hann á að baki tæpa 70 leiki með Breiðholtsliðinu en hann lék síðast með ÍR-ingum í 1. deildinni sumarið 2002.
Jón Auðunn verður í hlutverki leikstjórnandans á miðjunni hjá Árborg í sumar og hefur farið mikinn í undirbúningsleikjum liðsins.
Helgi Már er bakvörður sem uppalinn er hjá Víkingi í Reykjavík. Helgi hefur félagaskipti frá Umf. Höfrungi á Þingeyri en hann lék með liðinu í bikarkeppninni í fyrra. Leikstíll Helga er undir brasilískum áhrifum og verður gaman að fylgjast með þessum leiftursnögga bakverði í 3. deildinni í sumar.
Báðir hafa þeir félagar reynt fyrir sér sem knattspyrnumenn í Danmörku og spiluðu um tíma með liði frá Valby í dönsku deildinni.