Fotbolti.net
18.03.08 - 17:04
Magnús Már Einarsson

Johann Vogel til Blackburn (Staðfest)

Johann Vogel til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hefur gert tveggja og hálfs árs við svissneska miðjumanninn Johann Vogel.
Vogel hefur æft með Blackburn að undanförnu en hann kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Real Betis í desember.

Hann var orðaður við Sunderland og Everton en nú hefur hann hins vegar samið við Blackburn.

Vogel sem er 31 árs hefur einnig leikið með PSV Eindhoven og AC Milan á ferli sínum en hann vonast til að vinna sér sæti í svissneska landsliðinu fyrir EM í sumar.

Ef að leikheimild berst í tæka tíð gæti Vogel leikið sinn fyrsta leik með Blackburn þegar liðið mætir Wigan um helgina.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.