Fotbolti.net
18.04.19 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bielsa reynir að halda leikmönnum rólegum

Bielsa reynir að halda leikmönnum rólegum
Canon

Mynd: Getty Images

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, segir að það sé erfitt að halda leikmönnum félagsins rólegum þessa daganna.
Leeds er í öðru sæti Championship-deildarinnar, þremur stigum á undan Sheffield United í þriðja sæti, þegar fjórir leikir eru eftir óspilaðir.

Leeds er í dauðafæri á að komast upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn frá 2004.

„Þegar allir í kringum þig eru spenntir, þá er erfitt að vera rólegur," sagði Bielsa.

„Þú verður að hafa báðar þessar tilfinningar en það getur verið erfitt að finna jafnvægið. Það er enginn fótboltamaður sem hefur ekki sömu tilfinningu og stuðningsmaðurinn."

„Sem atvinnumenn verða þeir að finna jafnvægið og vera rólegir."

Leeds spilar við Wigan á föstudagskvöld en ef allt fer eftir plani þá gæti sætið í úrvalsdeildinni verið tryggt á mánudaginn.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.