18.05.05 - 22:48
Magnús Már Einarsson
Milicevic til Keflavík (Staðfest)

Keflvíkingar eru að fá liðsstyrk en hér er mynd úr leik liðsins gegn FH á mánudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar eru að fá liðsstyrk en hér er mynd úr leik liðsins gegn FH á mánudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Serbneski varnarmaðurinn Branko Milicevic mun leika með Keflavík í sumar en hann fékk leikheimild með liðinu í dag. Milicevic sem er 21 árs ætlaði upphaflega að koma til landsins og vera til reynslu hjá Fylki en hann hvarf ásamt umboðsmanni sínum rétt áður en að fyrsta æfing hans með Árbæjarliðinu átti að hefjast.
Branko lék meðal annars með Partizan Belgrad í heimalandi sínu en hann kemur til með að styrkja lið Keflvíkinga. Rúnar Arnarsson formaður knattspyrnudeildar liðsins sagði við Fótbolti.net í kvöld að liðið væri ennþá að leita liðsstyrk en ekkert lægi ljóst fyrir í þeim efnum.
