18.05.06 - 06:13
Magnús Már Einarsson
Wome til Werder Bremen (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Pierre Wome frá Kamerún hefur gengið til liðs við Werder Bremen á frjálsri sölu frá Inter Milan. Þessi 27 ára leikmaður sem á 67 landsleiki að baki hefur gert tveggja ára samning við þýska liðið.
Hann spilaði tólf leiki í Serie A á nýliðinni leiktíð og sjö leiki í Meistaradeildinni. Wome komst í fréttirnar í haust þegar að Kamerún mætti Egyptalandi í undankeppni HM. Í stöðunni 1-1 fékk Kamerún vítaspyrnu og gat Wome tryggt liðinu sigur og þar með sæti á HM. Hann misnotaði hins vegar spyrnuna og fékk mikla gagnrýni meðal annars frá liðsfélaga sínum í landsliðinu Samuel Eto'o.
Auk Wome þá ku Werder Bremen hafa áhuga á að fá Samuel Kuffour frá Roma og vonast liðið til að fá þennan fyrrum leikmann Bayern Munchen frítt.
Auk Wome þá ku Werder Bremen hafa áhuga á að fá Samuel Kuffour frá Roma og vonast liðið til að fá þennan fyrrum leikmann Bayern Munchen frítt.
