18.05.06 - 12:50
Magnús Már Einarsson
Águst Örlaugur í Kára (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson
Kári frá Akranesi sem leikur í þriðju deild hefur fengið miðjumanninn Ágúst Örlaug Magnússon frá Víkingi. Hinn tvítugi Ágúst sem getur einnig leikið í vörninni, gekk til liðs við Víking frá ÍA fyrr í vetur.
Hann hefur hins vegar núna ákveðið að fara aftur á heimaslóðir á Akranesi og leika með Kára en í fyrra var Ágúst í láni hjá liði KS úr fyrstu deildinni síðari hluta tímabilsins.
Sumarið 2004 var hann valinn besti leikmaður annars flokks ÍA og efnilegasti leikmaður meistaraflokks ÍA. Hann hefur leikið sjö landsleiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands og styrkir lið Kára í baráttunni í sumar.
Sjá einnig:
Hin hliðin á Ágústi