Fotbolti.net
18.05.06 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Jancker til Kína (Staðfest)

Jancker til Kína (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn stóri og stæðilegi Carsten Jancker hefur gert eins árs samning við kínverska liðið Shangai Shenhua en frá þessu greindi Kaiserslautern gamla lið leikmannsins nú í dag.
Þessi fyrrum leikmaður Bayern Munchen og Udinese segist vera að leita að nýrri reynslu eftir nýliðið tímabil þar sem hann var mikið meiddur og skoraði ekkert mark í fimm leikjum fyrir Kaiserslautern sem féll úr þýski Bundesligunni.

,,Þrjú eða fjögur evrópsk lið voru áhugasöm en kínverska áskorunin var of freistandi," sagði hinn 31 árs og 194 cm hái Jancker sem mun detta beint inn í 8-liða úrslitin í Meistaradeild Asíu með hinu nýja liði sínu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.