18.05.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Tveir Íslandsmeistarar ganga til liðs við ÍH (Staðfest)

Hallur Kristján Ásgeirsson.

Mynd: Guðmundur Karl

Hallur Kristján Ásgeirsson.

Mynd: Guðmundur Karl
ÍH úr annarri deild fékk tvo leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaði á sunnudag en þeir eru báðir Íslandsmeistarar.
Um er að ræða annars vegar bakvörðinn Ara Magnús Þorgeirsson sem varð Íslandsmeistari í handbolta með FH á dögunum.
Hinn leikmaðurinn er framherjinn reyndi Hallur Kristján Ásgeirsson sem er Íslandsmeistari þegar kemur að flestum félagaskiptum
Hallur hætti sem spilandi þjálfari hjá KH í þriðju deildinni í síðustu viku og hann ákvað að ganga til liðs við ÍH þar sem hann spilaði 2007 og 2009.
Þetta voru 27. félagaskipti Halls á ferlinum en hann skipti fyrst um félag árið 1996 þegar hann fór frá Neista Djúpavogi í Stjörnuna.
Þá eru þeir Garðar Ingi Leifsson og Sverrir Þór Garðarsson einnig komnir til liðs við ÍH frá Víkingi, en Sverrir kemur á láni.
ÍH gerði jafntefli við Dalvík/Reyni í fyrstu umferðinni í annarri deildinni en liðið mætir Völsungi á laugardag.