Fotbolti.net
18.05.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ben Ryan Long í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Ben Ryan Long í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ben Ryan Long gekk til liðs við Reyni Sandgerði áður en félagaskiptaglugginn lokaði á sunnudag.
Fyrir helgi gekk Ben í raðir Keflavíkur en hann stoppaði stutt við þar áður en hann fór í Reyni.

Ben þekkir vel til á Suðurnesjunum en hann spilaði með Njarðvíkingum í fyrra og Grindavík sumarið 2009.

Þessi 22 ára gamli Englendingur getur leikið allar stöður á miðunni sem og í bakverði.

Í fyrra lék Ben fjórtán leiki í fyrstu deildinni og tvo leiki í VISA-bikarnum með Njarðvíkingum.

Ben gæti leikið sinn fyrsta leik með Reyni þegar liðið mætir Dalvík/Reyni á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.