18.05.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Margrét Magnúsdóttir og Hulda Mýrdal í Fram (Staðfest)

Nokkrir leikmanna Fram liðsins sem komu til félagsins í mars.

Mynd: Fram - JKG

Nokkrir leikmanna Fram liðsins sem komu til félagsins í mars.

Mynd: Fram - JKG

Kvennalið Fram hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna í 1. deildinni í sumar en þær Margrét Magnúsdóttir og Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir komu til félagsins frá Val og KR.
Margrét Magnúsdóttir kemur til félagsins frá Val. Hún hafði verið á láni hjá Fylki og Grindavík á síðustu leiktíð og leikið tvo leiki með hvoru liði í Pepsi-deildinni. Áður hafði hún leikið með Fjölni tímabilið 2007 þar sem hún hóf meistaraflokksferilinn.
Hulda Mýrdal kemur frá KR þar sem hún hefur leikið fimm deildarleiki undanfarin ár auk þriggja deildarleikja með ÍR árið 2009.
Í vetur höfðu þær Rósa Hauksdóttir, Sara Lissy Chontosh, Elín Pálmadóttir, Rósa Hugosdóttir og Kristjana Arnarsdóttir gengið til liðs við Fram.
Haukur Hilmarsson þjálfar lið Fram en hann hafði tekið við af Sigríði Baxter í vetur.