Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   mán 18. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Riera rekinn frá Frankfurt (Staðfest)
Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Albert Riera var í gær rekinn frá þýska félaginu Eintracht Frankfurt.

Riera tók við Frankfurt í byrjun árs eftir að hafa gert góða hluti hjá Celje í Slóveníu.

Hann gerði tveggja og hálfs árs samning við Frankfurt, en náði ekki þeim markmiðum sem félagið setti honum.

Undir stjórn Riera vann liðið aðeins einn af síðustu sex leikjum sínum og mistókst að komast í Evrópukeppni eftir að hafa gert 2-2 jafntefli við Stuttgart í lokaumferðinni.

Í kjölfarið kom tilkynning frá Frankfurt um að það hefði komist að samkomulagi við Riera um að slíta samstarfinu, en ekki er ljóst hver tekur við af honum.


Slapp
banner