Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   mán 18. maí 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Stórkostlegt afrek Man Utd
Mynd: EPA
Manchester United er á skriði undir Michael Carrick á þessari leiktíð og annað tímabil að enda þar sem liðið tapar ekki heimaleik eftir að hafa verið yfir í hálfleik.

Luke Shaw kom United í 1-0 gegn Nottingham Forest um helgina og stóðu leikar þannig í hálfleik.

Forest jafnaði metin, en Bryan Mbeumo og Mateus Cunha sáu til þess að liðið myndi landa sigrinum.

Þetta var 400. leikurinn í röð þar sem United er yfir í hálfleik og tapar ekki. Í þessum 400 leikjum hefur liðið unnið 365 þeirra og gert 35 jafntefli, ótrúleg runa sem hófst árið 1984, tveimur árum áður en Sir Alex Ferguson tók við liðinu.


Slapp
banner
banner