Fotbolti.net
18.06.07 - 12:05
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Lyon fær tvo leikmenn frá Lille á 17 milljónir punda (Staðfest)

Keita (til vinstri) er dýrasti leikmaðurinn í sögu Lyon

Keita (til vinstri) er dýrasti leikmaðurinn í sögu Lyon

Canon

Mynd: Getty Images

Frönsku meistaranir í Lyon hafa gengið frá kaupunum á miðjumönnunum Mathieu Bodmer og Abdul Kader Keita og kosta þeir samanlagt sautján milljónir punda.
Báðir þessir leikmenn skrifuðu undir fjögurra ára samning á Stade Gerland og munu þeir að öllum líkindum spila stórt hlutverk undir stjórn Alain Perrin á næsta tímabili.

Keita, sem er landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar, er dýrasti leikmaðurinn í sögu Lyon en hann kemur fyrir hvorki meira né minna en 18 milljónir evra. Bodmer kostar hins vegar 6,5 milljónir evra.

Þá staðfesti stjórnarformaðurinn Jean-Michel Aulas einnig frá því að miðjumaðurinn Tiago sé á leiðinni frá félaginu og að tvö ítölsk félög séu að berjast um kappann.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.