18.06.08 - 21:59
Magnús Már Einarsson
John Arne Riise til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roma hefur keypt norska vinstri bakvörðinn John Arne Riise frá Liverpool á fjórar milljónir punda.
Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við Roma en frá þessu greindi ítalska félagið á heimasíðu sínni í kvöld.
Roma hefur verið á eftir Riise í þónokkurn tíma en á síðustu leiktíð var hann fyrir aftan Fabio Aurelio í goggunarröðinni á Anfield Road.
Fyrr í dag var greint frá því að Roma hefði fengið leyfi til að ræða við Riise og síðan gengu hlutirnir það hratt fyrir sig að hann er búinn að gera fjögurra ára samning við félagið.
Riise kom til Liverpool frá Monaco árið 2001 á 4,6 milljónir punda en hann hefur skorað 37 mörk í 347 leikjum með félaginu.

Heimild: BBC